Sængurgjöf handa lítilli dúllu sem fæddist um páskana. Uppskrift er fengin úr Dale Garn Baby blaðinu nr. 229 (þarsíðasta). Prjónaður úr Baby garninu úr Europris. Að auki heklaði ég ljúft skrímsli (engin uppskrift) handa henni sem situr nú í með hinum böngsunum á kommóðunni hennar.