Eftirréttir Kökur Uppskriftir

Bláberjaskyrterta

1 stór dós KEA vanilluskyr
1 peli rjómi
1 kassi LU kanilkökur
15 gr brætt smjör
Bláberjasulta
Bláber (fersk eða frosin)

Kexið er mulið og smjörinu helt saman við. Blöndunni er síðan þrýst í botn á breiðbotna móti. Rjóminn er þeyttur og skyrinu blandað saman við. Þetta fer síðan ofan á kexið. Bláberjum er síðan raðað ofan á og bláberjasultan fer síðan yfir alla kökuna. Má sleppa sultunni og/eða hafa önnur ber.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *