Brauð Kvöldmatur Uppskriftir

Pizzabotn

Þessi uppskrift að pizzabotni er fyrir 3 botna í pizzaofn (12″) eða 2 fullorðnis- og 2 barnabotna. Hægt að nota með eða án krydda, en okkur þykir betra að hafa botninn bragðmeiri og setjum því bæði oregano og heitt pizzakrydd frá Pottagöldrum.

Pizzabotn – uppskrift:

285 gr volgt vatn
10 gr þurrger
10 gr gul ólífuolía
550 gr hveiti
Oreganó og heitt pizzakrydd eftir smekk

Velgið vatnið og blandið við þurrgerið með gaffli. Látið það standa í 10 mínútur og bætið svo rest út í. Hnoðið í hrærivél í 8-10 mínútur.
IMG_9961

Bleytið viskastykki úr volgu vatni og leggið yfir skálina. Látið degið hefast í um klukkustund á hlýjum stað.

IMG_9963

IMG_9967

Á þessum tíma á deigið að hafa rúmlega tvöfaldast. Skiptið deiginu í 3 hluta og fletjið út með smá auka hveiti.

IMG_9973

IMG_9972

Forbakið botnana í ca. 30-60 sekúndur og setjið svo á botninn og eldið pizzuna.

IMG_9975

IMG_9979

Verði ykkur að góðu.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *