Brauð Uppskriftir

Focacciabrauð frá Guðrúnu

Hráefni:

1½ dl volgt vatn
1 msk ólífuolía
1½ tsk þurrger
1 tsk hunang (eða sykur)
½ tsk salt
ca 3 dl hveiti

 

Ofan á:

2 msk ólífuolía
1 lauf hvítlaukur
1 tsk basilika

Leysið upp þurrgerið og hunangið í volgu vatninu og bætið við salti og olíu. Bætið hluta af hveiti saman við. Hrærið deigið með sleif. Bætið hveiti í eftir þörfum. Deigið á að vera mjög blautt. Látið lyfta sér í skálinni í 20-25 mín. Setið deigið á disk með hveiti og veltið deiginu í hveitinu með sleikju. Setið nú deigið á bökunarpappírsklædda plötu. Fletið út með lófunum í 2 cm þykkan kringlóttan brauðhleif. Penslið olíublönduna yfir deigið og látið lyfta sér í 20 mín. Búið til holur í deigið með fingrunum og bakið á 220C í 10-12 mínútur. Pensla síðan restinni af olíublöndunni um leið og brauðið kemur út og strá sjávarsalti yfir.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *