Keto LKL Uppskriftir Ýmislegt

Guacamole (Keto)

Guacamole – uppskrift:

3 meðalstór þroskaðar lárperur (avókadó)
1 tómatur
2 pressuð hvítlauksrif
2-3 sneiðar af rauðlauk
1-2 tsk lime safi

Hreinsið rárperurnar og stappið niður svo þau maukist næstum alveg (fer eftir smekk). Skerið tómatinn smátt og einnig rauðlaukinn. Pressið 2 hvítlauksrif og blandið öllu saman. Kreistið lime safa yfir og blandið vel saman.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *