Keto Kvöldmatur Meðlæti Uppskriftir

Gobi rice / blómkálsgrjón (Keto)

1 stk blómkálshaus
1 msk Túrmerik
1 stk hvítur laukur
3 tsk pressaðu hvítlaukur
1 msk indverks kryddblanda frá Kryddhúsinu
Ólífuolía
Pipar eftir smekk

Skerið blómkálið mjög smátt og setjið í pott með vatni og túrmeriki og blandið vel saman. Sjóðið í 10 mínútur.

Skerið laukinn smátt og steikið á pönnu með olíu. Bætið hvítlauknum út í. Hellið vatninu af blómkálinu þegar það er tilbúið og setjið blómkálið út á pönnuna með laukblöndunni. Kryddið í lokin með indverskri kryddblöndu og pipar.

Óhætt að bera strax fram eða setja í eldfastform og geyma í ofni á lágum hita þar til borið er fram.

Gobi rice er tilvalið sem meðlæti með indverskum mat. Einn blómkálshaus hentar fyrir 3-4 ef rétturinn er notaður sem meðlæti.