Brauð Uppskriftir Ýmislegt

Heitt brauð með pepperoni

3/4 pakki skinka
1 bréf pepperoni
1 box sveppir
1 piparostur
3/4 sveppasmurostur
Mjólk
2 hvít brauð (eitt stórt)
Rifinn ostur

Skerið skinku, pepperoni, sveppi, og piparost niður í bita. Steikið sveppi létt í potti og bætið síðan sirka 2 dl af mjólk og 3/4 af sveppasmurosti. Bræðið smurostinn og setjið kjötálegg við og piparostinn, þynnið upp með mjólk og látið malla í 5-8 mínútur. Skerið skorpu af brauði og rífið í teninga og fyllið út í form með brauðinu. Hellið blöndunni yfir brauðið og blandið vel saman svo að brauðið blotni vel í gegn. Setjið rifinn ost yfir og inn í ofn á 180°C á blæstri þangað til osturinn er vel bráðinn og gullinbrúnn.

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *