Handavinnan 2012
Það sem ég hef verið að gera í janúar og febrúar 2012:
Peysa og húfa á Almar Ara Ólason.
Teppi sem ég byrjaði á í Flórída til að hafa eitthvað að gera þar. Teppið passar í barnarúm. Teppið á engan eiganda ennþá og því í boði að kaupa það ef áhugi er 🙂
Uglu-æðið er komið til mín og er ég búin að skoða svo marga hluti sem mig langar að gera. Ég byrjaði á að gera eina ugluhúfu.
Módelið á myndinni er ekki alveg orðin nógu stór fyrir húfuna, en verður það eflaust innan fárra mánaða! 🙂
Svo eru fleiri verkefni í gangi sem ég hef ekki enn klárað 🙂
Hvar færðu svona lítil og sæt módel? 🙂
Þessi yndislega frænka þín Kristján (ætla reyndar að ákvað að hún sé frænka mín líka) er algjör gullmoli og tilvalið módel 🙂 Gerir allar flíkurnar 100x flottari.