Herbergið hjá Róberti Inga
Herbergið hjá Róberti Inga er nú loks að verða tilbúið, að minnsta kosti í bili þangað til ég vil breyta einhverju 🙂
Stafirnir fyrir ofan rúmið eru tréstafir keyptir hjá Tréleik og ég málaði þá hvíta. Skýin eru límmiðar keyptir hjá Skiltastöðinni. Húsgögnin eru úr IKEA og gardínurnar saumaði mamma mín frá efni úr Vouge. Update: Liturinn á veggjunum er Turkisblár frá Flugger.
Barnabelgur með fæðingarupplýsingum eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur hangir yfir skiptiborðinu. Hægt að sjá nánar um loftbelgina hennar á heimasíðunni hennar bergruniris.com
Trélest með stöfum Róberts Inga, keypt í Bandaríkjunum og var gjöf frá ömmu Gróu og afa Þorvaldi.
Heklaði svo fánalengju úr bómullargarni og hengdi undir myndahilluna til þess að brjóta aðeins upp litina í herberginu. Kanína, Api og Bangsi fá svo að sitja í heiðursæti á miðri hillunni.
Mikki, Andrés og Guffi eru uppi á vegg og bjó ég þessar myndir sjálf til og prentaði út á 10×15 ljósmyndapappír og setti í ramma. Þið getið nálgast myndirnar hér ef ykkur langar að prófa að gera eins:
Turkisbláar:
Grænar:
Fjólubláar:
Herbergið lítur rosalega vel út á myndum. 🙂
Æðislegt! Ekkert smá sætt 🙂